Erum ekki GAY!

Tony & Montana

22.08.2007 12:53:32 / binni

Danmork

tid sem turfid ad hanga a heima a islandi getid nu fylgst med okkur felogunum i aarhus, Binni,Helgi,Jon og Kari asamt fullt af odrum krokkum.......

 

 

blog.central.is/arhus07

 

sjaumst i desember


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 23:42:50 / binni

Er þetta eðlilegt klukkan 6 að morgni til?

                                            

                            


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 22:23:31 / binni

heio

 

1. Í vinnunni í gær tókst einni stelpunni að afreka hlut sem ég hélt að væri ekki hægt.

Hún var að þjóna til borðs í baðstofunni sem er 5stjörnu place og það má alls ekki klúðra neinu þar. Eða helst ekki. Búið að setja glös,hnífapör og allt ready. Þá er bara maturinn eftir.

Það er samt dálítið erfitt að borða þegar enginn matur er á diskunum!

Við horfðum á eftir greyið stelpunni fara með tómu diskana en komum ekki orði upp úr okkur til að láta hana vita. Þegar hún kom svo aftur með tóma diskana og rauðari en jóltatré í framan sprungum við úr hlátri....það eina sem hún náði að koma upp úr sér var "hehe djók"

Þessar lesbíur geta stundum verið dálítið fyndnar!

2. Í vinnunni dag kom upp að mér eldri maður sem var vel í holdum og spurði:

"Hvar ætlar þú að vera þegar heimsstyrjöldin kemur"?

-Ég ætla bara að hlaupa í áttina að henni þegar það gerist,svona til að ljúka því bara af sem fyrst!

Ætla ekki að þræða í gegnum allt samtalið en það endaði allavega á því að þegar að henni kæmi að þá væri mér velkomið að koma til hans í kjallarann sem vill svo til að er kjarnorkusprengjuvarið og vera hjá honum. Það sé alveg öruggt!

-Ég veit ekki með ykkur en þetta fer í topp 3 yfir lélegustu pikk-up línur sem ég hef heyrt. Maðurinn veit greinilega ekki að bloggsíðan mín heitir "not so gay!"

Svona í lokin kem ég með eina mynd af mér og Helga þar sem við höfum sjaldan eða aldrei verið jafn edrú,rétt eins og myndin kemur til greina!

 

Hver er þessi rauðhærða!!!!

 

 

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 22:35:45 / binni

. . .

Jájá skemmtileg helgi afstaðin og má með sanni segja að hún hafi verið stútfull af skemmtilegum mómentum...

 Föstudagurinn var bara hinn týpiski föstudagur og bara hinn fínasti en laugardagurinn var svakalegur. Undirritaður fór á árshátíð World Class á Hótel Örk í Hveragerði...tók hana í staðinn fyrir árshátíðina hjá Leikni sem hefði örugglega ekki verið af verri endanum.

 Það sem gerðist hjá World Class í stuttum setningum;

-fullur

-spunaleikrit fyrir framan nokkur hundruð manns! sem ég vissi ekki að ég átti að leika í nema rétt 3min fyrir leikritið....sögur herma að sjaldan hafi nokkur maður svitnað jafn fljótt og jafnmikið á svo skömmum tíma ..en það lagaðist eftir nokkrar mín og fékk maður að heyra að ef ég hefði ekki verið í því að þá hefði það verið enn leiðinlegra en það var!

-klætt sig upp í kjól,hárkollu og kórónu og svo bara beint út á dansgólf(bara uppá funnið,tekið skal fram að kjóllinn fór yfir fötin mín!)

-dansað við gamla heimamenn/-konur með kúrekahatt í takt við rokktónlist

-fannst allir hverfa eftir skemmtiatriðin og hélt að flestir hefðu farið heim,ákvað þá með 2 öðrum að hella mig bara blindxxxxxxx

-2klst síðar fann ég alla..þá orðin vel góður á því...drapst í rúminu mínu 3tímum seinna

-var vakinn,hótaði barsmíðum á stelpurnar sem reyndu að vekja mig....setningar eins og "ég smetta ykkur allar í andlitið ef þið drullið ykkur ekki út" fengu að fljúga, þær hlupu í burtu en mönuðu sig svo í að koma aftur og þá nennti ég að vakna

-drykkju haldið áfram

-farið að sofa klukkann 09.00

-vaknað of seint til að stimpla mig úr herberginu...það var enginn þarna...það eina sem vantaði var að plastpoki myndi svífa framhjá mér í allri þögninni...en sem betur fer fann ég samstarfsfélaga til að fá far með eftir smá leit...

-síminn ónytur!

og svo læt ég fylgja með viðtal við mig af Leikni.com:

NFS´07: Brynjar Óli Guðmundsson
Höf. Elvar Geir Magnússon

 

Brynjar Óli Guðmundsson

Aldur: Rétt sloppinn í 21 árs aldurinn.

Leiknir er... lífið.

Ef ekki fótbolti þá... lyftingar og Bootcamp.

Útihlaup eða lyftingar? 30% útihlaup og 70% lyftingar.

Hver er í versta forminu? Man ekki alveg hver náði verst í Cooper-testinu en ég veit að Gissur getur ekki EINA upphífingu og í mesta lagi sjö armbeygjur (snerta gras og rétta úr höndum).

Flottasta mark á ferlinum? Ætli það sé ekki með U-23 með Leikni á móti Breiðablik þegar eftir arfaslakan leik af minni hálfu tók ég upp á því að reykspóla upp allan völlinn, sóla mann og annan og smyrja honum utanfótar með vinstri upp í vinkilinn fyrir utan teig (við töpuðum).

Fyrsta minning varðandi Leikni: Horfandi á eftir öllum vinum mínum fara á æfingu með Leikni því ég æfði enn með Þrótt...... talandi um ljóta búninga!

Lið í enska? Liverpool (fyrir utan; Hyppia, Rise, Reina, Crouch, og alla þessa spanjóla sem geta ekkert. Alonso er ekki í þeim hóp).

Fyrirmynd í æsku? Laudrup bræðurnir.

Hvaða liði myndirðu aldrei spila með? Neista á Djúpavogi... Óli hvað varstu að spá?

Fallegasti fótboltamaður landsins? Ég sjálfur auðvitað.

Besti leikmaður Leiknis frá upphafi: Ekki ég sjálfur.

Hvaða leikmann myndirðu helst vilja fá í Leikni? George Best fullann.

Hver er lengst í sturtu? Ég og Gunnar Jarl hugsa ég í fljótu bragði.

Uppáhalds sjónvarpsefni? Hef ekki hugmynd!

Uppáhalds drykkur? Pepsi Max og sítrónu kristall.

Uppáhalds hljómsveit? Incubus er efst og svo er endalaust hægt að telja.

Uppáhalds staður í heiminum? Upp í rúmi og þar sem er heitt og ódýrt að sötra.

Robbi Arnþórs er... flottur gæi.

Ef þú fengir eina ósk, hver væri hún? Fá fleiri óskir.

Mesti sprelligosinn í Leikni? Allir held ég bara, nema Dóri eldri. Íris er með greyið í vasanum!

Lumarðu á skemmtilegri sögu? Engum Leiknissögum en ef þú talar við Hafstein Tómasson getur þú skrifað heila bók með þeim.

Skilaboð til lesenda Leiknir.com: Keep it real og stay in school!



» 2 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 01:26:05 / hobbit

Smitandi hlátur

Þið verðið að skoða þetta. Ég gat ekki hætt að hlægja

http://www.kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=&id=3041


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 17:18:45 / hobbit

Ísland bezt í heimi!

Í þessu eru Íslendingar bestir í heimi af öllum þjóðum! 

Íslendingar eiga heimsmet í: 

1.    Notkun greiðslukorta 

2.    Coco-Puffs áti

3.   Rafmagnsnotkun 

4.   Fjölda styrktarforeldra barna í þriðja heiminum  

5.    Netvæðingu  

6.    Fjölda reglna við ljóðagerð 

7.    Bíóferðum  

8.    Áskrift að Disney bókum 

9.    Sölu á tölvuleiknum Ghampionship Manager 

Ég var að horfa á gamla spólu sem ég átti, og eftir myndina kom þáttur um Ísland og þar fékk ég þennan lista, þetta var spóla frá svona 2004 en ég var að spá hvort þessi listi hafi eitthvað breyst síðan þá. Maður er náttúrulega ánægður með nr.4 en svo er bara töff að selja mest af Champa. 

P.S Ég elska Vörutorg!

Kv Óttarr


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 22:13:16 / binni

. . .

-Fótboltadjamm í gær þar sem þema kvöldsins var Blúnduskyrtur og hattar. Það var bara fínt. Það voru allir að ég held vel yfir velsæmismörkunum. Gott dæmi um það er til dæmis Helgi. Helgi kom einn heim frekar snemma. svona ca. 09.00 og hvernig sem hann fékk það út að þá fannst honum mjög sniðugt að klæða sig í öll fötin sín og sofa í þeim!

-Við tveir vorum í þessum töluðu orðum að skrá okkur í Fótbolta Akademíuna á Árhus sem hefst í águst= úúújeeee

-Við töpuðum ekki á móti Fjölni í gær, sem er stökk upp á við frá því að tapa!

-Tvennt sem ég vil koma að að lokum:
1. Sá auli sem kemur upp með sniðug qoute fyrir kvikmyndir(eiga að virka gáfað,en gerir það ekki!) á skilið að vera lamin af gömlum kellingum!
" It was all so simple, until it got complicated"  er til dæmis gefinn réttur til barsmíða!

2. Helgi vill koma því á framfæri að hann langar til að sofa hja dverg.

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 22:39:27 / binni

. . . .

-Dómararnir á leiknum Ísland-Pólland voru fávitar!..Óþarft að segja meira um það.

-Hver var eiginlega dj á leiknum? Íslenski þjóðsöngurinn spilaður á þreföldum hraða og það náði enginn að halda í lagið!..sást glitta í bros hjá Óla Stef. þegar hann söng með.

-Helgi át yfir sig í dag og ældi!!! Hversu mikill mongóliti ert hægt að vera?

-Er það bara ég eða voru einhverjar tvær mestu gellur sem sést hefur upp í stúku á landsleiknum í dag? Held að málið sé að skella sér til Póllands!

Hummm..very nice! How much? Do you wanna have sexy time with me?


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 22:58:29 / binni

Þunnur?


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 01:34:14 / hobbit

Nokkrar myndir

Ég fann nokkrar myndir af síðasta laugardagskveldi. Það voru allir mjög hressir og húfan hjá Maríu gerði klárlega gæfu mun eins og sést á þessum myndum.

 

Allir að dansa samba

 

´haha.. ég verð að eignast svona húfu

 

ÉG VILL FÁ TEKÍLA!

Við erum Töff!!!

Pétur Svans hress!

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2007 17:39:14 / hobbit

orðheppið fólk.

Fleygar setningar úr tjónaskýrslum ákveðins tryggingafélags:

Ég rakst á kyrrstæðan vörubíl, sem var að koma úr hinni áttinni

·Ég hélt að bílglugginn væri opinn, þangað til ég hafði stungið höfðinu út um hann.

·Ég sagði lögreglunni að ég væri ómeiddur, en þegar ég tók ofan hattinn, komst ég að því að ég var höfuðkupubrotinn.

·Það kom bara ósýnilegur bíll, rakst á mig og hvarf.

·Ég sá að gamli maðurinn mundi aldrei hafa það yfir götuna og keyrði á hann.

·Ég var búinn að keyra í 40 ár, þegar ég sofnaði við stýrið og lenti í slysinu

·Sá fótgangandi stóð og vissi ekkert í hvora áttina hann átti að hlaupa svo ég keyrði yfir hann.

·Ég var á leiðinni til læknisins, þegar púströrið datt aftur úr mér.

·Ég var að reyna að drepa flugu og keyrði þarna á símastaurinn.

·Hinn bíllinn keyrði beint á mig, án þess að gefa neitt merki um hvað hann ætlaði að gera.

·Það bakkaði trukkur gegnum rúðuna á mér og beint í andlitið á konunni

·Maðurinn var alls staðar á veginum, ég varð að taka heilmargar beygjur, áður en ég rakst á hann.

·Ég beygði frá vegbrúninni, rétt leit á tengdamömmu, og hentist út fyrir veginn hinum megin

 

 

Verði ykkur að góðu!

 

Kveðja Óttarr


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 00:09:15 / binni

ATH

Það sem ég gleymdi að  nefna er að kortin sem ég er að selja eru einnig nothæf í Baðhúsið og Þrekhúsið fyrir konur og Þrekhúsið fyrir karla

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 20:11:33 / binni

Tyrkland-gjafabréf á hlægilegu verði!

Vegna fyrirhugaðrar æfingaferðar til Tyrklands stöndum við í Leikni R. fyrir fjáröflun til að standast kostnað. Fjáröflunin er þannig að okkur hefur verið úthlutað gjafabréf í sporthúsið til að selja, Þ.e.a.s árskort og eru kort þessi á algjöru gjafaverði, 26.000 kr en venjulega kostar árskort í sporthúsið 36.000 kr!!!

Þau kort sem ég sel,eða nánar tiltekið ákveðin prósenta af hverju seldu korti hjá mér fer svo inn á reikning fyrir mína hönd sem fara upp í ferðina mína.
Því væri það mér mikil ánægja ef þú vildir styðja við mig og um leið sjálfan þig því eins og við vitum öll er líkamsrækt eingöngu af hinu góða og þá sérstaklega ef hún gefst á verði eins og þessu sem ég býð þér:)

Ef af einhverjum ástæðum að þú hefur ekki áhuga á þessum kaupum hver sem hún er vil ég byðja þig um að senda þennan póst áfram til þeirra sem þú heldur að hafi áhuga.

Til að greiða fyrir gjafakortið býð ég upp á þrjá möguleika.
-Þeir eru að greiða inná reikning hjá félaginu sjálfu og þá fá kortið sent til sín í pósti.
-Hitta mig og greiða í peningum og fá kortið afhent á sama tíma.
-Greiða í félagsheimilinu að Vesturbergi í Breiðholti, borga, taka fram að keypt sé kort af mér og fá kortið þá afhent.

Reikningsnúmer:537-26-16903
kt:690476-0299

Hvaða leið sem þið veljið tek ég fram að hringja verður í mig fyrst svo ég geti séð um kaupin.
...p.s. tilvalið í jólapakkann

Kær (jóla)kveðja/
Brynjar Óli Guðmundsson
s:867-1404
e-mail:binniosa@hotmail.com


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Dagsetning
18. mars 2010
Klukkan
Leitarbox

Myndir